Vísur teknar úr bókinni Breiðfirskar Sagnir II, skrifuð af Bergsveini Skúlasyni
Guðjón Jónsson (20. apríl 1866 - 20. ágúst 1883 ) var sagður fluggáfaður og gott skáld. Las hann allt það sem hann komst yfir, kunni fjöldan allan af heilum og hálfum rímum. Aðeins eru þó tvær vísur þekktar eftir hann.
Eitt sinn var það að Guðjón reri haustvertíð í Bjarneyjum. Var hann beðinn að skjótast út úr búðinni og athuga til veðurs árla morguns. Kom hann fljótt inn aftur og lét frá sér þessa vísu:
Austan hvass og hvín í rassi mínum,
hríðarbáran hörð og stinn,
himinninn grár og kafloðinn.
Hina vísuna sem þekkt er kom hann með eftir að vera spurður um hverslags mat honum hafði verið boðið á næsta bæ, er hann þar gisti.
Selur, þrár og súldaður,
sótugur, fúll og þefslæmur,
morkinn, úldinn, myglaður,
mannaskíti líkastur.