tradisjoner og tradisjonsmat
 Hjem
D’er kvar dag etardag, men ikkje kvar dag fiskardag.       
Gå nederst på siden




















TEKST

Tvær vísur eftir Jón betri

Tekið úr Íslenskir sagnaþættir og þjóðsögur XII, sem Guðni Jónsson hefur safnað saman.

Jón Jakobsson eða Jón betri (átti allnafna sem var kallaður Jón verri) eins og hann var kallaður var mikið á ferðalögum hér árum áður og bar oft með sér bréf frá sjómönnum í sveitirnar og úr sveitunum til sjómanna. Eitt sinn um haust kom Jón að Hrepphólum og ætlaði að vera þar um nótt. Kalt var í baðstofunni og fór því Jón út í fjós. Fjósakonan þar bar nafnið Guðrún og var hún kölluð Gunna. Hún kvartaði mikið yfir því hversu erfitt það væri í fjósinu og engin kæmi að hjálpa sér, kýrinn vitlaus, kvígan ekkert betri og kálfurinn alltaf að míga undir sig. Bjó þá Jón til þessa vísu:

Engan Gunna á sér pilt,
allt er það í standi,
kýrinn vitlaus, kvígan tryllt
og kálfurinn símígandi.
Þegar Jón segir Valdimar Briem, sem var prestur þar, vísuna svarar hann: 'Það er góð hjá þér vísan, Jón minn, út af ekki meira efni'.

Einu sinni þegar Jón hafði ferðast lengi var hann orðinn mjög svangur. Kemur hann að bæ einum og fer beinustu leið inn í eldhús og sér þar kjötlæri í trogi. Etur hann af lærinu en fréttir það síðan aðeins seinna að lærið er af hundi sem soðið var til að ná af því feiti til áburðar. Kemur þá Jón með þessa vísu:

Lúinn eftir langan veg
lítt við hungur undi,
græðgisfullur gleypti eg
ganglim einn af hundi.


Søk i over 200 norske nyhetskilder hos Kvasir.

Valid HTML 4.01! © Magnús Þór Magnússon 2002 - 2005 Gå øverst på siden