Blóðpönnukökur Skriv ut oppskriften

70 g hveiti
200 g rúgmjöl
6 dl blóð
3 dl mjólk
100 g tólg eða flesk
45 g sykur
2 tsk salt
¼ tsk pipar
1/8 tsk engifer
1/8 tsk negull
Fita til þess að steikja í


Rúgmjöli, hveiti og kryddi er blandað saman, vætt í með mjólkinni og blóðinu. Bezt er að hræra þetta með þeytara, svo að soppan verði sem jöfnust. Bíði í stund. Tólgin er skafin, en sé notað flesk, er það skorið í örmjóar rámur og saxað smátt. Blandað í soppuna. Steikt eins og venjulegar pönnukökur, en gæta verður þess, að kökurnar séu mjög þunnar og þurrar í gegn. Settar í bunka með sykri á milli, beztur er púðursykur. Skorið af öllum pönnukökubunkanum eins og tertu. Borðað með aldinmauki. Eplamauk er bezt með þeim.

Matur og drykkur, Helga Sigurðardóttir, Reykjavík 1991
Bókina er væntanlega hægt að nálgast í verslunum Máls og Menningar.
Du finner denne oppskriften igjen på: http://tradisjoner.no/oppskrift970.html