| Fjallagrasa-blóðmör | |
7 dl blóð
3 dl vatn ¼ kg rúgmjöl 100 g fjallagrös 100 g haframjöl 1 msk salt 1 – 1 ½ kg mör Fjallagrösin eru sett í kalt vatn, þvegin og tínd vel. Heitu vatni hellt á og grösin þerruð. Skorin eða söxuð. Gott er að þau þorni svolítið aftur. Blóðið er sigtað og vatni og salti blandað í það. Rúgmjöli og fjallagrösunum hrært saman við, og hinum brytjaða mör blandað í. Sett í þétt saumaða keppi, sem látnir eru ofan í saltvatn, sem sýður. Það má ekki pikka þá alveg strax. Gætið þess að láta ekki alla keppina ofan í einu. Soðið eins og blóðmör. Matur og drykkur, Helga Sigurðardóttir, Reykjavík 1991 Bókina er væntanlega hægt að nálgast í verslunum Máls og Menningar. |
|
| Du finner denne oppskriften igjen på: http://tradisjoner.no/oppskrift954.html |
|