| Tröllasúrugrautur (rabarbara-) | |
3000 gr. vatn, 1200-2000 gr. tröllasúra (rabarbari), 150-200 gr. kartöflumjöl, 200 gr. sykur, 2 stengur kanel, hálf til ein stöng vanilje (vanille).
Tröllasúran (rabarbarinn) er flysjuð og skorin í bita, þvegin og soðin í vatninu með kanelnum og vaniljunni (vanille) í mauk; síað. Karftöflumjölið hrært sundur með dálitlu af vatninu, sem tiltekið er. Þegar seyðið sýður er jafningnum hellt í og hrært vel innan um pottinn á meðan. Soðið 1-3 mín. Sykurinn er látinn í seyðið, þegar sýður. Grautnum er hellt í skálar og stráð ofan á hann litlu einu af strásykri (strau-). Grauturinn er borðaður volgur með nýmjólk eða rjóma. (Hallgerður Gísladóttir, Íslensk matarhefð, Reykjavík, 1999) |
|
| Du finner denne oppskriften igjen på: http://tradisjoner.no/oppskrift460.html |
|