| Fjallagrös | |
Taka skal 2 lóð af grösum og 1 1/2 pott af vatni og sjóða það í eirpotti (Kasserolle), ásamt dálitlu af steyttum kanelberki, þangað til það er orðið í 3 bolla. Það þarf langan tíma til að sjóða þetta, og er því best að sjóða það að kvöldi, ef það á að brúkast að morgni til í staðinn fyrir kaffi eða tevatn. Einnig má sjóða grösin í mjólk, og verður þetta þá bragðbetra heldur en ef grösin eru soðin í vatni.
(Hallgerður Gísladóttir, Íslensk matarhefð, Reykjavík, 1999) |
|
| Du finner denne oppskriften igjen på: http://tradisjoner.no/oppskrift433.html |
|