½ l blóð
100 g brauðmylsna
100 g mör eða tólg
50 g rúsínur
50 g sykur
1 lítil tsk salt
½ tsk pipar
½ tsk negull
Eldfast mót er smurt með smjöri og stráð brauðmylsnu. Rúsínurnar eru hreinsaðar og soðnar augnablik, hellt á gatasigti og þurrkaðar á bréfi. Mörinn er saxaður smátt. Blóðið er síað vel, og í það er blandað brauðmylsnu, mör, rúsínum og öllu kryddinu. Deigið er látið í mótið, sem sett er í skúffu með vatni inn í ofn og bakað í 3-4 stundarfjóðrunga. Þegar myndazt hefur skorpa ofan á búðinginn, er smjörpappír settur ofan á. Búðingurinn er bakaður, þegar prjónn, sem stungið er í hann, litast ekki rauður af blóði. Búðingurinn á að vera vel þéttur, léttur og ekki með harðri skörpu. Mótið er sett augnablik inn í ofninn, eftir að það hefur verið tekið upp úr skúffunni með vatninu. Hvolft á fat eða pentudúkur settur utan um mótið. Borðaður strax, vel heitur, með bræddu smjöri, kartöflum og rabarbara- eða eplamauki.
Matur og drykkur,
Helga Sigurðardóttir, Reykjavík 1991
Bókina er væntanlega hægt að nálgast í verslunum
Máls og Menningar.