½ svínshaus
½ - svínatunga
1 msk salt
1 – 2 tsk pipar
1 tsk allrahanda
¼ tsk negull
4 lárberjablöð
10 heil piparkorn
1 – 2 laukar
Þar sem svínshausinn er ævinlega feitur, er nauðsynlegt að hafa heila tungu í sultuna, og sé hann mjög feitur, þá einnig magurt kjöt. Bezt er kálfakjöt. Hausinn er sagaður í sundur, heilinn tekinn úr og augun skorin í burtu. Sjóðandi vatni er hellt yfir hausinn og hann skafinn, þangað til hann er mjúkur. Nasirnar og munnurinn skorinn af, og hausinn burstaður úr rennandi köldu vatni, utan og innan. Hausinn sagaður í 4 – 6 parta þversum. Sé hausinn ákaflega feitur, verður að skera dálítið af fleskinu. Stykkin er nú þerruð og þeim raðað í pott, beinhliðin niður. Þar á er stráð salti, piparkornunum, helmingnum af lauknum og lárberjablöðunum. Sjóðandi vatni hellt á, svo að tæplega fljóti yfir. Soðið við hægan eld í 2 klst. Skrápnum er flett af eftir klst. Gæta skal þess að veiða froðuna vel ofan af. Þegar beinin eru laus í hausnum, er hann færður upp og beinin tekin úr honum. Skrápnum er raðað inn í skál eða mót, sem skolað er úr köldu vatni og fóðrar grisju, ef vill. Sé notað kjöt og tunga, er það hvort tveggja soðið með í pottinum. Nú er feita og magra kjötið skorið í jafna bita og þeim raðað í lög í jólakökumót. Steyttu kryddi er stráð á milli og einnig smásaxaða lauknum, sem eftir er. Ef eitthvað er eftir af skrápnum, er hann látinn ofan á í mótið. Soðið, sem síað hefur verið, er látið á undirskál til þess að vita, hvort það hleypur saman. Hlaupi það vel, er ofurlítið látið yfir sultuna, annars verður að láta það sjóða lengur. Létt farg má láta ofan á mótið. Eigi að geyma sultuna, er bezt að sjóða hana niður. Er henni þá raðað beint í niðursuðukrukkur og soðið á venjulegan hátt í 1 klst. Sé sultan vel stinn, má geyma hana í léttu salt-ediksvatni í 2-3 vikur, eða í sláturtunnunni. Sé hausinn stór, verður að nota meira krydd en ætlast er til í uppskriftinni. Grísasultu má borða sem sjálfstæðan rétt til miðdegisverðar með kartöflum og rauðrófum eða grænmetisjafningi.
Matur og drykkur,
Helga Sigurðardóttir, Reykjavík 1991
Bókina er væntanlega hægt að nálgast í verslunum
Máls og Menningar.