Nýr mör er hreinsaður og skorinn í jafna bita. Settur í járnpott eða pönnu. Í 1 kg af mör er látinn ½ - 1 dl af vatni. Mörinn er bræddur, þar til bitarnir eru gulbrúnir og vatnið soðið upp. Hellt í ílát. Hamsatólg er ljúffengt að borða með fiski, t. d. Saltfiski og signum fiski.
Matur og drykkur,
Helga Sigurðardóttir, Reykjavík 1991
Bókina er væntanlega hægt að nálgast í verslunum
Máls og Menningar.