750 g blóðmör
100 g sláturflot eða tólg
2 – 3 msk sykur
Steikja má hvort sem er nýjan eða súran blóðmör, einnig má steikja lifrarpylsu. Sláturflotið er hitað á pönnu. Þegar byrjar að rjúka úr því, eru slátursneiðarnar, sem eru í meðllagi þykkar, settar á pönnuna og steiktar þangað til þær eru orðnar dökkar. Raðað á heitt fat og fitunni hellt yfir. Sykrinum stráð á slátrið. Hér með soðnar kartöflur. Einnig má hita slátursneiðar upp í örlitlu sykurvatni á pönnu og framreiða eins og steiktan blóðmör.
Matur og drykkur,
Helga Sigurðardóttir, Reykjavík 1991
Bókina er væntanlega hægt að nálgast í verslunum
Máls og Menningar.