3 egg
½ tsk salt
3 msk mjólk
20 g smjörlíki
Eggin eru hrærð með saltinu í skál, mjólkin hrærð út í. Smjörlíkið er brætt í potti eða pönnu. Eggjunum er hellt í pottinn og hrært í með trésleif, sem er breið að neðan. Hrært er hægt fram og aftur, þar til eggin eru hér um bil hlaupin saman. Þá er eggjahlaupið látið öðrum megin í pottinn, látið standa á volgum stað, þar til það er alveg hlaupið saman.
Matur og drykkur,
Helga Sigurðardóttir, Reykjavík 1991
Bókina er væntanlega hægt að nálgast í verslunum
Máls og Menningar.