1/2 saltkjöt eða nýtt kjött
50 g laukur
75 g smjörlíki eða jurtaolía
75 g hveitibrauð
1/4 dl mjólk
Eggjahvíta og brauðmylsna
Saltkjötið afvatnað, þerrað vel og saxað einu sinni. Brauðið skorið smátt og lagt í ofurlitla mjólk. Laukurinn brúnaður. Öllu þessu er hrært saman og kryddað eftir smekk. Mótað í flatar, kringlóttar kökur, sem dýft er ofan í hveiti og því næst velt upp úr eggi og brauðmylsnu. Steikt móbrúnt. Bezt er að steikja kjötkökurnar í olíu. Borðað með grænmetis- eða kartöflujafningi. Ef notað er nýtt kjöt, þarf að blanda salti við deigið.
Matur og drykkur,
Helga Sigurðardóttir, Reykjavík 1991
Bókina er væntanlega hægt að nálgast í verslunum
Máls og Menningar.