1 l mysa
4-5 msk sykur
50 g kartöflumjöl
1 dl kalt vatn
Heill kanill
Mysan er soðin með kanil og sykri í 5-10 mínútur. Þá er kartöflumjölsjafningnum hrært út í. Sett í skál og sykri stráð yfir og kælt. Láta má rauðan ávaxtalit eða krækiberjasaft saman við grautinn. Nota má góða sláturmysu.
Matur og drykkur,
Helga Sigurðardóttir, Reykjavík 1991
Bókina er væntanlega hægt að nálgast í verslunum
Máls og Menningar.