2/3 l áfir eða súrmjólk
1 1/4 l mjólk
250 g heilhveiti eða hrísmjöl
30 g smjör
1 1/2 tsk salt
Hveiti er sett í pott, út í það er áfunum hrært smátt og smátt. Hitað, en stöðugt hrært í á meðan. Þá er hinni heitu mjólk hrært út í, þar til grauturinn er hæfilega þykkur. Soðið í 4-5 mínútur. Smjörbitinn og saltið sett í. Borðaður með saft.
Matur og drykkur,
Helga Sigurðardóttir, Reykjavík 1991
Bókina er væntanlega hægt að nálgast í verslunum
Máls og Menningar.