1 l mjólk
1/2 l vatn
30 g fjallagrös (1 hnefi)
2 msk hafragrjón
Púðursykur
Þegar mjólk og vatn sýður, eru haframjölin sett út í ásamt grösunum, sem eru vel þvegin. Soðið í 5 mín. og salt og sykur sett í eftir smekk. Ágætt er að sjóða þennan velling í moðsuðu. Eru þá grösin látin í, þegar sýður, og potturinn látinn í moðsuðuna í 1-2 klst. Suðan er látin koma upp á eftir.
Matur og drykkur,
Helga Sigurðardóttir, Reykjavík 1991
Bókina er væntanlega hægt að nálgast í verslunum
Máls og Menningar.