1 l broddur
Mjólk eftir þörfum
1-2 tsk salt
Ábrystir er hleyptur broddur blandaður með mjólk, mismunandi mikilli eftir því, hve þykkur hann er. Rétt er að blanda í fyrstunni lítið magn, t. d. Í bolla, og hleypa til reynslu. Blandið síðan, það sem nota á, leysið saltið upp í örlitlu volgu vatni og blandið saman við. Látið broddblönduna í lokað ílát, t. d. Skál með hlemm eða lítinn pott, og sjóðið við hægan hita í vatni niðri í stórum potti með þéttum hlemm eða í ofni, þangað til broddblandan er hlaupin. Gætið þess, að vatn sjóði ekki ofan í ílátið með broddinum. Hlaupið á að vera þétt, samfellt og mjúkt. Ábrystirnar eru borðaðar með kanil og sykri og mjólk eða rjómablandi. Með köldum ábrystum er gott að hafa karamellusósu.
Matur og drykkur,
Helga Sigurðardóttir, Reykjavík 1991
Bókina er væntanlega hægt að nálgast í verslunum
Máls og Menningar.