3/4 kg rabarbari eða 1/2 l saft
1 l vatn
1 msk karftöflumjöl
1 dl vatn
2 egg
5 msk sykur
Tvíbökur
Rabarbarinn er þveginn, skorinn smátt og soðinn með vatninu í 3-5 mín. Ef saft er notuð í stað rabarbara, er henni blandað í vatnið og suðan látin koma upp. Rabarbarinn er síaður og lögurinn hitaður aftur. Kartöflumjöli hrært út í köldu vatni og súpan jöfnuð með því.
Egginn eru aðskilin, rauðurnar hrærðar með sykrinum. Eggjahvíturnar stífþeyttar og blandað gætilega saman við rauðurnar, súpan hrærð út í eggin mjög gætilega. Súpan borðuð með tvíbökum.
Matur og drykkur,
Helga Sigurðardóttir, Reykjavík 1991
Bókina er væntanlega hægt að nálgast í verslunum
Máls og Menningar.