1/2 kg rabarbari
3 dl vatn
100 g sykur
2 1/2 msk kartöflumjöl
1 dl vatn
25 g möndlur
1/2 stöng vanilla
Rabarbarinn er hreinsaður, skorinn smátt og soðinn með vatni og sykri.
Möndlurnar eru afhýddar og saxaðar smátt og settar út í. Vanillustöngin er líka látinn í og soðin 3-4 mínútur. Jafnað með kartöflumjöli hrærðu út í köldu vatni. Sé rabarbarinn grófur, verður að sía grautinn, en .að er þá gert, áður en sykurinn er látinn í.
Með grautnum er bezt að borða þeyttan rjóma, rjóma, rjómabland eða eggjamjólk.
Matur og drykkur,
Helga Sigurðardóttir, Reykjavík 1991
Bókina er væntanlega hægt að nálgast í verslunum
Máls og Menningar.