1/4 l kjötsoð
20-50 g skarfakálsblöð
1 eggjarauða
Skarfakálið er hreinsað, þvegið og vatnið látið sífa af því. Blöðin skorin í ræmur og sett á disk. Bragðgóðu kjötsoði, sem er sjóðandi heitt, er hellt á diskinn, þar í er látin 1 hrá eggjarauða. Súpa þessi er mjög holl og sérstaklega nærandi og styrkjandi handa sjúklingum. Skammtur þessi er aðeins handa 1.
Matur og drykkur,
Helga Sigurðardóttir, Reykjavík 1991
Bókina er væntanlega hægt að nálgast í verslunum
Máls og Menningar.