Í 40 pt. kvartil tvíbotnað þarf 40 pd. af bláberjum og 13 pt. af sykri. Berin eru fyrst marin og safinn látinn síast vel frá og standa svo nokkra daga, svo hann

verði vel tær. Maukið er ekki tekið með. Þegar búið er að gera kvartilið vel hreint, þá er það strax fyllt með sterku, sjóðandi heitu einiviðarseyði og látið standa í því á meðan berjaseyðið stendur óhreyft. Þegar saftinn hefur staðið hæfilega lengi er einirseyðinu hellt úr kvartilinu og þegar kvartilið er orðið þurrt innan, þá er berjasaftinu hellt í það, svo sykrinum, og síðast er bætt svo miklu vatni í, að ekki sé meira en þverhandarborð á kvartalið. Það er nú látið á dimman stað til þess að “gerast” og er vel hrært í því á hverjum degi í 4-5 vikur. Síðan er kvartilið fyllt alveg með vatni, sponsið látíð í og tappar og sett ofan í kjallarann. Þetta blaáberjavín er ágætt og alveg óáfengt. Það má búa til úr miklu minni berjum, en þó verður allt að vera tilsvarandi. Í apríl er því hellt á flöskur og er þá vínið hæfilegt til brúkunar.
(Hallgerður Gísladóttir,
Íslensk matarhefð, Reykjavík, 1999)