Lagt inn den 23.05.2002
Sendt inn av Magnús Þór Magnússon
|
|
|
Rabarbarasalat
Rabarbaraleggir, sykur, sítrónusafi (honum má þó sleppa), söxuð steinselja.
Tæplega þroskaðir, ótrénaðir rabarbaraleggir eru þvegnir og skornir í þunnar sneiðar. Á þær er stráð ofurlitlum sykri og sítrónusafa. Bíði í 1/2 klst. Þá er saxaðri steinselju blandað saman við salatið og það borðað strax.
Salat þetta er sérstaklega ljúffengt með grænmetisréttum, sem og með öllum steiktum fiski og kjötmat.
(Hallgerður Gísladóttir, Íslensk matarhefð, Reykjavík, 1999)
|
|