Lagt inn den 23.05.2002
Sendt inn av Magnús Þór Magnússon
|
|
|
Tröllasúrukaka (rabarbara-)
1000 gr. tröllasúra (rabarbari), 250 gr. tvíbökur, 500 gr. sykur, smjör, 1 stöng kanel, 250-500 gr. rjómi.
Tröllasúran er flysjuð, síðan skorin í mjög litla bita og soðin í litlu vatni, ásamt kanelnum og helmingnum af sykrinum, þar til hún er soðin í mauk. Það þarf að vera eins og þykkur grautur. Tvíbökurnar eru steyttar, en smjörið og sykurinn brúnað ljósbrúnt, ásamt steyttu tvíbökunum; meðan þarf stöðugt að hræra í og eins meðan það er að kólna. Þetta er svo látið í vel smurt mót, þannig að efsta og neðsta lagið er úr brauði og þrjú að tröllasúrunni. Svo er mótið látið inn í meðalheitan ofn og kakan bökuð 1/2 til 1 kl.st. og svo látin kólna í mótinu; síðan hvolft á fat og skreytt með rjóma.
Líka má borða kökuna með steyttum sykri eða eggjabráð, sem þá er borin sér. Kakan er borðuð sem eftirmatur til miðdegisverðar.
(Hallgerður Gísladóttir, Íslensk matarhefð, Reykjavík, 1999)
|
|