Lagt inn den 23.05.2002
Sendt inn av Magnús Þór Magnússon
|
|
|
Kálstappa úr grænkáli
1 pd. kál,
10 kv. smjör,
1/2 pd. mjólk,
10 kv. hveiti,
múskat á hnífsoddi,
ögn af salti og sykri.
Kálið er slitið upp, síðan er það rifið frá leggjunum og tínd öll visin og ormétin blöð úr, þvegið úr tvennum rennandi vötnum og látið út í 1 pt. af sjóðandi vatni, ásamt ögn af salti. Þegar kálið er orðið meyrt, skal hella því á sigti, svo vatnið renni frá, saxa það síðan smátt með hveitinu. Smjörið er brætt í potti og kálið látið í það ásamt múskatinu, saltinu og sykrinum, þá er mjólkinni smáhellt í og alltaf hrært vel í, þangað til mjólkin er öll komin út í, og kálstappan orðin jöfn.
Í staðinn fyrir mjólk má brúka kjötsoð eða vatn og salt. Á þennan hátt má búa til stöppur úr ýmsum blöðum, svo sem af spínati, skarfkáli, njóla og súrum.
(Hallgerður Gísladóttir, Íslensk matarhefð, Reykjavík, 1999)
|
|