Lagt inn den 23.05.2002
Sendt inn av Magnús Þór Magnússon
|
|
|
Súrsaðar gulrófur
1 kg gulrófur, 500 gr sykur, 1/2 l edik, 1/2 l vatn, lárviðarlauf og heill pipar.
Stórar gulrófur eru flysjaðar og skornar í 2 cm ferninga. Vatnið, sykurinn og edikið er látið í pott og þegar þetta sýður eru rófubitarnir látnir út í. Rófurnar eru soðnar í ca. 15 mín. Teknar upp og raðað í heitar krukkur. Lögurinn er soðinn þangað til hann fer dálítið að þykkna, þá er honum hellt yfir rófurnar. Eftir 2 daga er lögurinn tekinn og soðinn upp og hellt síðan aftur yfir rófurnar. Þetta er gert til þess að hann skemmist síður.
(Hallgerður Gísladóttir, Íslensk matarhefð, Reykjavík, 1999)
|
|