Lagt inn den 23.05.2002
Sendt inn av Magnús Þór Magnússon
|
|
|
Súrur
Súrurnar skal setja upp í köldu vatni, eftir að búið er að nema stilkana burt, og þegar þær eru búnar að sjóða nokkuð, skal hella vatninu frá og sjóða síðan meyrar með dálitlum bita af smjöri og ögn af salti og sykri. Svo skal núa þeim gegnum pjátursáld, og heita síðan aftur yfir eldi.
(Hallgerður Gísladóttir, Íslensk matarhefð, Reykjavík, 1999)
|
|