Lagt inn den 23.05.2002
Sendt inn av Magnús Þór Magnússon
|
|
|
Meyktir njólaleggir
Ystu himnuna skal flysja af leggjunum, sem síðan skal brytja niður, láta svo liggja nokkra stundir í köldu vatni, og sía svo vatnið frá í sáld. 1 1/2 pd. af þannig undirbúnum leggjum skal setja upp ásamt 12 lóðum af ljósu púðursykri en ekki láta neitt vatn í. Þá skal hræra vel í og sjóða aðeins fáeinar mínútur, því þá eru leggirnir orðnir meyrir. Þetta viðmeti er helst brúkað kalt.
(Hallgerður Gísladóttir, Íslensk matarhefð, Reykjavík, 1999)
|
|