Lagt inn den 23.05.2002
Sendt inn av Magnús Þór Magnússon
|
|
|
Krækisaftlegnar gæsabringur
Leggið gæsabringurnar í krækiberjasaft og salt yfir nótt. Einnig er gott að setja út í villtar kryddjurtir s.s. blóðberg, ljónslöpp, vallhumal o. fl. Steikið bringurnar heilar á pönnu eða í ofni (í potti). Ef steikt er á pönnu þá sjóðið í krækiberjasaft og vatni í ca. 60 mín. Ef í ofni þá ca. 20-40 mín., eftir því hvort þær eigi að vera rauðar í miðju. Gerið sósu úr soðinu, krækiberjasaftinni og rjómanum. Ef soðnar eru í potti þá þykkið soðið með hveiti og rjóma.
(Hallgerður Gísladóttir, Íslensk matarhefð, Reykjavík, 1999)
|
|