Lagt inn den 23.05.2002
Sendt inn av Magnús Þór Magnússon
|
|
|
Krækiberjagrautur
3000 gr. vatn, 1500-2000 gr. krækiber, 200 gr. sykur, 150 gr. kartöflumjöl, 2 stengur kanel, hálf til ein stöng vanilja.
Krækiberin eru tínd og þvegin og soðin með kanelnum og vaniljunni, þar til allur litur er soðin úr þeim; síað, sykrað og jafnað. Soðin 1-3 mín. Grauturinn er ýmist borðaður kaldur eða aðeins volgur með nýmjólk, eða þegar meira er haft við, með rjóma.
(Hallgerður Gísladóttir, Íslensk matarhefð, Reykjavík, 1999)
|
|