4 pottar af bláberjum eru steyttir og soðnir 1 klukkustund með 1 pela af hafragrjónum í 5 pottum af vatni. Þegar búið er að sía súpuna, er hún látin upp aftur og soðin með dálitlu af kaneli, sítrónuberki, negulnöglum og sykri. Borðast með steiktu brauði. Handa 8.
Önnur aðferð er sú, að taka 4 pd. af berjum og 4 potta af vatni, sjóða síðan í 1/2 tíma, sía hana og láta svo upp aftur með sítrónuberki og kaneli. Þegar sýður, er froðan veidd ofan af og látið út í sykur og rauðvín, og er síðan jöfnuð með einni kúfaðri teskeið af jarðepla eða sagómjöli eða matskeið af hrísgrjónamjöli. Er hún svo borðuð með steiktu brauði.- Handa 8.
(Hallgerður Gísladóttir,
Íslensk matarhefð, Reykjavík, 1999)