Lagt inn den 23.05.2002
Sendt inn av Magnús Þór Magnússon
|
|
|
Grasamjólk
Af meðal fjallagrösum vel tíndum og þvegnum, úr köldu vatni eru 5 lóð látin í 3 potta af mjólk, ásamt mola af stjörnuanís, og soðin 1/2 stund þá er búið og tekið ofan, og svo á ef vill, láta ögn af sykri og salti í. Þetta er nóg á 5 djúpa diska eða handa 5 mönnum, ef annar réttur er með.
(Hallgerður Gísladóttir, Íslensk matarhefð, Reykjavík, 1999)
|
|