Lagt inn den 23.05.2002
Sendt inn av Magnús Þór Magnússon
|
|
|
Brauðsúpa
Handa 6.
1 1/2 pd. brauð,
4 pt. vatn,
3 sítrónudropar,
sykur.
Brauðið er skorið í bita og soðið í vatninu þar til hægt er að núa því í gegnum gatasigti. Síðan er látið yfir eldinn aftur og suðan látin koma upp, þar næst er sykur látinn út í súpuna eftir bragði, enn fremur sítrónudroparnir. Í þessa súpu er gott að hafa þeyttan rjóma og skal þá láta hann í súpuskálina áður en súpunni er ausið í hana.
(Hallgerður Gísladóttir, Íslensk matarhefð, Reykjavík, 1999)
|
|