250 g hveiti
1 tsk lyftiduft
1/2 tsk salt
6-7 dl mjólk
25-50 g smjörlíki
2 egg
Blandaðu þurrefnunum í skál og blandaðu saman. Bætu síðan við mjólk og egg saman við og hrærist þangað til að passlegri þykkt er náð. Þá er hægt að hella bráðnu smjörlíki saman við.
Takið tæpan dl. af soppunni og hellið
á pönnuna, um leið og henni er snúið til að dreifa soppunni yfir alla pönnuna.
Til að þetta gangi þarf hitinn á pönnunni að vera passlegur, og soppan akkúrat
passlega þunn. Síðan er losað um kökuna og henni snúið með pönnukökuspaða.
Endurtakist eftir þörfum.