Lagt inn den 11.04.2002
Sendt inn av Magnús Þór Magnússon
|
|
|
Rúgbrauðs kaka
1/4 pd. af þurrkuðu, rifnu og smásteyttu rúgbrauði skal hræra saman við 12 vel þeytt eggjablóm, 3/4 pd. af steyttu hvítasykri, vökva úr 2 appelsínum, 6 lóð af sætum og fáeinum bitrum steyttum möndlum og ögn af rifnum sítrónuberki. Þegar búið er að hræra þetta vel saman 1 1/2 stund, skal hræra eggjahvítunum þeyttum saman við. Bakast 1 1/2 klukkustund. – Handa 6.
(Hallgerður Gísladóttir, Íslensk matarhefð, Reykjavík, 1999)
|
|