Lagt inn den 11.04.2002
Sendt inn av Magnús Þór Magnússon
|
|
|
Jarðeplabrauð
Sjóða skal jarðepli, flysja og stappa síðan vel í sundur meðan þau eru heit, síðan skal láta stöppu þessa saman við rúgmjöl og hnoða svo miklu mjöli í, að breiða megi deigið út í kökur til þess að baka á glóðum eða hellu, eða steikja á pönnu. Sömuleiðis má hafa jarðepli í súrbrauð, en þá er líka látið saman við dálítið af volgu vatni. Súrdeigið er molað í sundur ofan í skál, látið á það volgt vatn, og hrært vel i sundur; síðan er því hellt í mjöltrogið ásamt jarðeplastöppunni og vel elt. Þetta skal gjöra að kvöldi dags og láta svo deigið standa nóttina yfir eins og annað brauðdeig, en hnoða svo miklu af mjöli í það, sem þurfa þykir, morguninn eftir.
(Hallgerður Gísladóttir, Íslensk matarhefð, Reykjavík, 1999)
|
|