Lagt inn den 11.04.2002
Sendt inn av Magnús Þór Magnússon
|
|
|
Mjölsnúðar (eggjabollur)
30 kv. hveiti
4 egg
salt, sykur
20 kv. smjör
1 peli vatn
múskat á hnífsoddi
Smjörið er brætt í potti og hveitinu hrært vel í það, þá er smáhellt í það vatninu og stöðugt hrært í með sleif, þar til það hvorki tollir við sleifina né pottinn, þá er þetta tekið af eldinum og látið kólna dálítið, síðan er eggjunum hrært í, einu og einu í senn. Snúðarnir eru teknir með skeið og soðnir annaðhvort í súpunni, eða mjólkinni, sem á að brúka þá í.
(Hallgerður Gísladóttir, Íslensk matarhefð, Reykjavík, 1999)
|
|