Lagt inn den 11.03.2002
Sendt inn av Magnús Þór Magnússon
|
|
|
Súpa af heilagafiski
Eftir að búið er að þvo og skafa fiskinn vel og vandlega úr 2 eða 3 vötnum, er hann látinn liggja í saltvatni nokkurn tíma áður en hann er brúkaður. Nú er fiskurinn soðinn, eins og áður er fyrr sagt, og þegar búið er að sía súpuna, má láta í hana dálítið af kjötseyði og brytjuðum næpum eða mola af engiferi, sömuleiðis sveskjur, saxaða steinsilju, eða í hennar stað hvannarótargras, sniðlauk, kórennur eða saxaðar rúsínur, múskatsblóm, dálítið af sykri og gamalvíni. Seinast jafnar maður súpuna með hveiti, hrærðu út í vatni. Í þessa súpu má brúka fisk-, hveiti- eða brauðsnúða. Súrt og sætt er látið í allra seinast eftir þörfum.
(Hallgerður Gísladóttir, Íslensk matarhefð, Reykjavík, 1999)
|
|