Lagt inn den 11.03.2002
Sendt inn av Magnús Þór Magnússon
|
|
|
Síldarkökur
1000 gr. síld
500 gr. kartöflur
90 gr. laukur
1/2 ts. pipar
100 gr. hveiti
250 gr. nýmjólk
2 egg
125 gr. tvíbökur
60 gr. smjör
125 gr. tólg
Síldin er afvötnuð, hreinsuð og söxuð einu sinni ásamt soðnum kartöflum og lauknum. Smjörið brætt, hveitinu hrært saman við það. Mjólkinni er smáhellt út í. Deigið elt í pottinum þar til sleifin hreinsar sig. Þá er það látið í fat og piparnum, saltinu og eggjunum einu og einu í senn hrært saman við og síðast síldinni og kartöflunum. Þegar búið er að hræra þetta vel eru búnir til snúðar úr deiginu, sem er velt upp úr eggjum eða þunnum hv.jafningi og svo muldum tvíbökum. Brúnaðir og borðaðir með smjöri eða brúnni sósu og kartöflum. Saltaða síld má nota ef hún er vel afvötnuð.
(Hallgerður Gísladóttir, Íslensk matarhefð, Reykjavík, 1999)
|
|