Lagt inn den 11.03.2002
Sendt inn av Magnús Þór Magnússon
|
|
|
Síldarsalat
2 síldar
4-6 soðnar kartöflur
1 lítill laukur
2 ms. edik
1/2 ts. pipar
Síldin er afvötnuð 2 klst. og lengur ef þarf. Þvegin, flött og hýdd. Því næst er hún söxuð ásamt lauk og kartöflum. Þessu öllu er blandað saman við edikið og piparinn. Ef til er, er gott að hafa dálítið af kjöti saman við. Það er skreytt með harðsoðnum, söxuðum eggjum eða rauðrófum og gulrótum, sem lagt er í ýmsum myndum ofan á salatið.
(Hallgerður Gísladóttir, Íslensk matarhefð, Reykjavík, 1999)
|
|