Lagt inn den 11.03.2002
Sendt inn av Magnús Þór Magnússon
|
|
|
Saltfiskbætingur (-búðingur) með bræddu smjöri
500 gr. saltfiskur
125 gr. smjör
125 gr. hveiti
500 gr. nýmjólk
50 gr. þrúgur (rúsínur)
200 gr. egg
150 gr. smjör (brætt)
Saltfiskurinn er afvatnaður og soðinn, beinin og roðið tekið af honum og saxaður einu sinni í söxunarvél. Smjörið brætt og hveitinu hrært saman við það; mjólkinni er smá hellt í. Deigið er slegið í pottinum, þar til það er orðið einn kökkur; piparinn og saltfiskurinn þá látinn í. Þá er deigið látið dálítið kólna og eggjarauðurnar og þrúgurnar (rúsínur) látnar í. Eggjahvíturnar eru vel þeyttar og látnar síðast saman við. Salti er bætt við eftir þörfum. Bætingsmótið (-búðings) er smurt með smjöri og steyttu brauði og deigið látið í, Bætingurinn (búðingurinn) er soðinn 2 kl. st. eða bakaður 1 1/2 kl. st. Þegar hann er bakaður í ofni, er dálitlu af brauði sáldrað ofan á hann. Bætingurinn er borinn á borð í mótinu. Borðaður með bræddu smjöri.
(Hallgerður Gísladóttir, Íslensk matarhefð, Reykjavík, 1999)
|
|