Lagt inn den 11.03.2002
Sendt inn av Magnús Þór Magnússon
|
|
|
Hangibjúgu (Spegepölser)
8 pd. af nautakjöti innanlærs skal skafa niður og saxa saman við 8 pd. af mögru niðurbrytjuðu fleski með 3/4 pd. af salti, dálitlu af saltpétri, 1 lóði af negul, 1 1/2 af pipar, og 1 1/2 lóði af allrahanda, þangað til deigið verður seigt, hnoða svo með höndunum, og um leið láta saman við 4 pund af feitu smábrytjuðu fleski. Verði deigið of hart, má láta dálítið af rauðvíni í. Nú er deigið troðið í langa og svo fast sem verður, og þeir fylltir og bundið fyrir, og má hvergir lofta á milli, því þá skemmast bjúgun. Ekki má sjóða þessi bjúgu, en það skal núa þau utan með salti láta þau svo liggja 1 sólarhring; þá skal enn þjappa saman í þeim, binda betur fyrir og láta svo aftur liggja einn sólarhring. Að því búnu eru þau þurrkuð vel að utan, vafin innan í pappír og látin hanga í reyk í 3 vikur.
(Hallgerður Gísladóttir, Íslensk matarhefð, Reykjavík, 1999)
|
|