Lagt inn den 11.03.2002
Sendt inn av Magnús Þór Magnússon
|
|
|
Rótasósa
Rótasósa, svo sem af rófum, gulum gulrótum, kálrapísrótum, silleries og péturseljurótum tilbýst þannig: Ræturnar skerast í sneiðir, og meyrsjóðast í góðu kjötseyði; svo eru þær soðnar upp aftur með hveiti og smjöri samaneltu, uns sósan er jöfn orðin; þá er útí hana látin 2 eggjablóm, sundurhrærð í nokkru af sósunni, einn eður 2 spænir rjóma og útþveginn smjörbiti, og hrært svo vel saman. Þessi sósa er ágæt með öllu kjöti.
(Hallgerður Gísladóttir, Íslensk matarhefð, Reykjavík, 1999)
|
|