Lagt inn den 11.03.2002
Sendt inn av Magnús Þór Magnússon
|
|
|
Litlir kúmen ostar
Súrmjólk skal láta í léreftspoka og hengja hann upp, svo að mysan renni úr honum. Þegar kosturinn er orðinn þurr, skal leggja hann á fat, láta í hann dálítið af salti, kúmeni og hálfbræddu smjöri, og hræra þetta allt vel saman; síðan eru búnir til með 2 tréskeiðum litlir kringlóttir ostar úr þessu sem lagðir eru á fjöl og látnir standa í sólskini til að þorna. Kvölds og morgna skal snúa þeim þangað til þeir sjálfkrafa losna við fjölina. Síðan má undir eins snæða þá.
(Hallgerður Gísladóttir, Íslensk matarhefð, Reykjavík, 1999)
|
|