tradisjoner og tradisjonsmat
 Hjem
D’er uvandt å ausa der det sig att-i.       
Gå nederst på siden




















OPPSKRIFT

Lagt inn den 11.03.2002
Sendt inn av Magnús Þór Magnússon
Print ut oppskriften Send denne oppskriften til en bekjent
Ormamjólk


Ormamjólk svo kölluð tilreiðist svo: Handa 5 eður 6 mönnum eru tekin 2 egg og slegin vel í sundur með fullum tekoppi af vatni í skál; svo er þar saman við hrært, svo mikið af hveitimjöli, sem það getur viðtekið, uns það er orðið að hörðu deigi; það er síðan vel hnoðað og á hreinu borði eður fjöl með kefli útflatt svo þunnt, sem allramest verður, litlu af hveiti sáð undir og ofan á, svo það ekki loði við, og er því oft snúið, hveiti ásáð, og keflað sem þynnst. Þetta þunna deig er nú skorið sundur í eins og 2ja fingra breiða enda, og eru 3 af þeim lagðir hvör ofan á annan, og mjög þunnt ásáð af hveiti yfir og undir og á milli þeirra, svo hvörgi loði við. Svo eru þessir endar skornir upp með velbeitum knífi þvert yfir um, eður þó nokkuð skáhallt, svo fint og mjótt, sem verður, og því betri eru þeir, sem mjórra og skáhallara er skorið. Þegar allt deigið er þannig uppskorið, er þessum mjóu tægjum ruglað lauslega saman á diski, á þær sáð litlu af hveiti, svo ekki loði hvör við aðra; en þegar mjólkin sýður, eru þær látnar útí, ásamt litlu af steyttu kaneli og sykri, kemur þá á þær bugða eða snúningur, svo líta út, sem ormar innan um mjólkina, af hvörju hana nefna má ormamjólk.

(Hallgerður Gísladóttir, Íslensk matarhefð, Reykjavík, 1999)

Antall treff: 1326
Flere oppskrifter fra denne kategorien

Søk i over 200 norske nyhetskilder hos Kvasir.

Besøk ABC Matoppskrifter
Valid HTML 4.01! © Magnús Þór Magnússon 2002 - 2005 Gå øverst på siden